Verkefnið Tónlistariðkun í þremur leikskólum er samþætt rannsóknar- og þróunarverkefni þar sem megin markmiðið er efling tónlistarkennslu og tónlistariðkunar á leikskólastiginu. Þrír öflugir tónlistarkennarar sem starfa í þessum leikskólum munu auka samstarf sín á milli og í samvinnu við sérfræðinga á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð menntamála (SFS) og vinna að afurð í formi stuðningsefnis fyrir eflingu tónlistariðkunar í leikskólum sem verður aðgengilegt á vef. Jafnframt verður unnið að birtingum niðurstaðna á fræðilegum vettvangi og lögð drög að hagnýtum vinnusmiðjum fyrir starfandi leikskólakennara. Mikil vöntun er á rannsóknum á tónlistariðkun á leikskólastiginu og einnig er þörf fyrir heildstætt námsefni í tónlist fyrir leikskóla. Þessu verkefni er ætlað að vinna faglega að báðum þessum þáttum.
Þátttakendur eru: Klambrar, Stakkaborg, Nóaborg, Menntavísindasvið HÍ og Nýsköpunarmiðstöð menntamála.
Verkefnastjóri er Anna Björk Marteinsdóttir.
Verkefnið hlaut 8.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.