Þetta námsefni er ætlað miðstigi grunnskóla og byggir á hæfniviðmiðum og lykilhæfni Aðalnámskrár grunnskóla.
Efnið er rafrænt og í formi gagnvirkra glærukynninga sem búnar voru til í fyrirlestrarforritinu Nearpod.
Verkefnin byggja á femínískri menntunarfræði og kynjafræði og eru fimm talsins. Helstu þemu eru kvenleiki og karlmennska, kynbundinn launamunur, verkaskipting kynjanna, kynbundið náms- og starfsval og kynbundið uppeldi. Kennsluleiðbeiningar fylgja.