Með því að tryggja börnum og unglingum tæki og tól til að þroskast kynferðislega á heilbrigðan hátt styrkjum við þau í sjálfstæðum ákvörðunum og hvetjum þau til að taka ábyrgð á eigin lífi og efla þar með sjálfið, o.fl.
Stór hluti verkefnisins er unnin í samstarfi við Benediktu Sörensen/RannTóm sem er að gera doktorsrannsókn, sem miðar að því að skoða þær ofbeldisforvarnir- og kynfræðslu sem unglingarnir sem taka þátt í rannsókninni fá.
Þáttakendur í verkefninu eru félagsmiðstöðvar í Kringlumýri, Réttarholtsskóli, Jafnréttisskólinn og RannTóm.
Skólaárið 2021-2021 fékk verkefnið 4.000.000 kr. í styrk.