Í Fellaskóla er unnið að verkefni undir heitinu Draumaskólinn. Markmiðið með því er að nemendum bjóðist framúrskarandi menntun, nái góðum árangri þannig að þeir geti látið drauma sína rætast.
Leiðarljós í skólastarfinu eru mál og læsi, leiðsagnarnám, tónlist og skapandi skólastarf.
Sjá myndband um verkefnið þar sem deildarstjórar kynna kennsluhætti, leiðsagnarnám og fl.