Í þessu myndbandi er sýnt hvernig Sandra Rán Garðarsdóttir kennir yngstu nemendunum fyrstu sundtökin í bringusundi. Hún sýnir hvaða kennsluaðferðir hún notar til að nemendur nái þessari mikilvægu grunnfærni.
Elvar Þór Friðriksson íþróttakennari sýnir hvernig farið er með með nemendum í gegnum hugleiðslu/slökun en það fyrirkomulag hefur skilað sér í betri virkni og líðan nemenda.
Rakel Logadóttir segir frá hreyfiskýrslum sem hún hefur verið að vinna með á unglingastigi.