Leikið með Mikadó-spil. Allir pinnarnir eru látnir falla niður.
Þátttakendur skiptast á að draga einn pinna án þess að aðrir pinnar hreyfist.
Í hvert skipti sem þátttakanda tekst að draga pinna án þess að hreyfa aðra á hann að segja frá því fyrir hvað hann/hún er þakklát/-ur, í samræmi við litinn á pinnanum.
Fyrirfram er ákveðið hvað hver litur táknar t.d. getur rautt táknað manneskju, gult stað, grænt aðstæður/viðburði o.s.fv..
Fyrir hvern pinna fást stig og ákveða spilarar hversu mörg stig hver litapinni gefur. Sá sem er með flest stig í lok leiks sigrar.