Á vef Barnaheilla má finna verkefnið Vináttu. Það byggir á nýjustu rannsóknum á aðgerðum gegn einelti og á ákveðinni hugmyndafræði og gildum sem mikilvægt er að séu samofin öðru starfi þeirra skóla sem vinna með efnið. Vináttu-verkefnið býður upp á raunhæf verkefni fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra. Þátttaka allra í þessu forvarnarverkefni er grundvöllur þess að vel takist til. Gert er ráð fyrir að þátttakendur tileinki sér þessi grunngildi við vinnu og í samskiptum innan skólasamfélagsins.
![](https://menntastefna.is/wp-content/uploads/2019/08/Iconar-45-e1567668935448.png)
![](https://menntastefna.is/wp-content/uploads/2019/08/Iconar-45-e1567668935448.png)
Félagsfærni, Sjálfsefling
Vináttuverkefni Barnaheilla
Tenging við menntastefnu
Félagsfærni, Sjálfsefling
Gerð efnis
Kveikjur, Myndbönd, Verkefni
Markhópur
Ung börn
Viðfangsefni
Andleg og félagsleg vellíðan, samskipti, samvinna, umræður og einelti.