Í sögukössum, pokum, skjóðum eða töskum er viðbótarefni með sögulestri. Markmiðið er m.a. að gera orðin sýnilegri og söguna meira lifandi.
Sjá hér að neðan hvernig útbúa má slíkt efni.
Í sögukössum, pokum, skjóðum eða töskum er viðbótarefni með sögulestri. Markmiðið er m.a. að gera orðin sýnilegri og söguna meira lifandi.
Sjá hér að neðan hvernig útbúa má slíkt efni.
Í sögukassanum, -pokanum, -skjóðunni, -töskunni er barnabók og síðan viðbótarefni sem tengist efni bókarinnar, s.s.:
• handbrúður eða aðrar fígúrur
• margs konar hlutir sem tengjast söguþræðinum eða myndir af þeim
• lykilorð
• spil
• hugmyndir að leikjum
• fræðibók
Viðbótarefnið á að dýpka skilninginn á sögunni og orðunum sem eru í henni. Með viðbótarefninu gefst börnunum kostur á að:
• leika söguna með hlutunum
• endursegja söguna með hjálp hlutanna
• …og þegar er fræðibók – að grúska meira og kafa dýpra
Hafið sögukassana, – pokana, -skjóðurnar, -töskurnar einfaldar og aðgengilegar. Það er betra að vera með tvo eða þrjá mismunandi sögukassa,með mismunandi efnivið við sömu bókina, heldur en að vera með einn með alltof miklu viðbótarefni.