NýMið - Nýsköpunarmiðja menntamála
Nýsköpunarmiðja Menntamála (NýMið) hefur það hlutverk að veita starfsstöðum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar stuðning og ráðgjöf við innleiðingu menntastefnunnar, stuðla að samstarfi við háskóla um starfsþróun og veita stuðning við þróun og nýsköpun í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi. NýMið tilheyrir skrifstofu SFS og vinnur í nánu samstarfi við leikskóla-, grunnskóla-, og frístundaskrifstofu, Mixtúru, Miðju máls og læsis, Miðstöð útivistar og útináms sem og aðra starfsstaði SFS.
Verkefni á vegum Nýsköpunarmiðju Menntamála
Aino Freyja Jarvela
Verkefnastjóri tónlistar og listfræðslu
Yfirmaður stjórnenda skólahljómsveita, samstarf við tónlistarskóla, innleiðing tónlistarstefnu SFS. Situr í stjórn barnamenningar og sér um verkefnastjórn í Skrekk, Barnamenningarhátíð ofl.

Harpa Þorvaldsdóttir
Verkefnastjóri menningartengdra verkefna
Er verkefnastjóri yfir verkefninu Syngjandi skóli og situr í verkefnastjórn barnamenningar. Tekur þátt í að stýra viðburðum og verkefnum sem tengja saman börn og menningu s.s. Skrekk, Barnamenningarhátíð, Sögur-verðlaunahátíð barnanna og fleira. Miðlar upplýsingum, veitir ráðgjöf og stuðning um menningartengd verkefni og sinnir samstarfi við menningarstofnanir innan og utan Reykjavíkurborgar.

Hjörtur Ágústsson
Skrifstofustjóri
Skrifstofa Nýsköpunar og þróunar
Yfirumsjón með rekstri Nýsköpunarmiðju Menntamálar, Mixtúru og Miðju máls og læsis.
Stuðningur, fræðsla og ráðgjöf við starfsstaði skóla- og frístundasviðs vegna innleiðingar menntastefnu. Kemur að starfsþróun, símenntun, ráðgjöf, nýsköpun og þróun skóla- og frístundastarfs í samstarfi við aðila innan og utan SFS.

Indíana Rós Ægisdóttir
Verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur
Sér um ráðgjöf, stuðning og fræðslu um jafnréttis- og kynheilbrigðismál til stjórnenda og starfsfólks í leik- og grunnskólum og frístundastarfi borgarinnar. Veitir ráðgjöf, stuðning og fræðslu til stjórnenda og starfsfólks vegna óæskilegrar kynhegðunar og kynferðisofbeldis í skóla- og frístundstarfi. Stýrir árlega kynheilbrigðisátakinu Vika 6.

Þorbjörg Arna S. Jónasdóttir
Alþjóðasamstarf
Umsjón með alþjóðasamstarfi og yfirsýn yfir innlenda og erlenda styrkjamöguleika. Veitir stuðning og ráðgjöf við starfsstaði skóla- og frístundasviðs vegna umsókna, umsýslu alþjóðaverkefna og stærri innlendra og erlendra þróunarverkefna. Staðgengil yfirmanns NýMið og tekur þátt í verkefnum sem tengjast innleiðingu Menntastefnu.

Margrét Björnsdóttir
Forstöðukona skólasafna
Skráir og flokkar nýtt efni, íslenskt og erlent, fyrir skólasöfn grunnskólanna. Veitir ráðgjöf varðandi bókakaup og innkaup annars efnis. Er með ráðgjöf um uppsetningu safnkosts og grisjun úrelts efnis. Miðlar upplýsingum og hugmyndum í safnavinnu og heldur utan um fræðslu- og samráðsfundi fyrir starfsfólk skólasafnanna.

Maríanna Guðbergsdóttir
Verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur
Sér um ráðgjöf, stuðning og fræðslu um jafnréttis- og kynheilbrigðismál til stjórnenda og starfsfólks í leik- og grunnskólum og frístundastarfi borgarinnar. Veitir ráðgjöf, stuðning og fræðslu til stjórnenda og starfsfólks vegna óæskilegrar kynhegðunar og kynferðisofbeldis í skóla- og frístundstarfi. Stýrir árlega kynheilbrigðisátakinu Vika 6.