Heilbrigði

Handbókin Kynverund og kúltúr: Kynfræðsla fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

Kynfræðsla er oft ekki nægilega aðgengileg fyrir börn og ungmenni af fjölbreyttum tungumála- og menningarbakgrunni. Í Fellaskóla og öðrum fjölbreyttum skólaumhverfum hafa komið upp áskoranir þar sem nemendur vilja jafnvel ekki taka þátt í kynfræðslu vegna misskilnings eða mismunandi menningarlegra gilda. Ef kynfræðsla tekur ekki mið af þessum fjölbreytileika getur það leitt til samskiptaörðugleika, árekstra og skorts á öryggi nemenda. 

Verkefnið er hluti af inngildingu í skóla- og frístundastarfi og hefur það markmið að tryggja að öll börn fái alhliða og aðgengilega kynfræðslu. Með samstarfi við sérfræðinga á sviði kynfræðslu, inngildingar, fordóma og fjölbreyttra menningarhópa, þar á meðal frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, verður þróuð rafræn handbók sem veitir starfsfólki skóla og frístundastarfs leiðbeiningar um hvernig mæta megi fjölbreyttum hópi barna og ungmenna kynfræðslu á árangursríkan hátt. 

Þátttakendur eru: Fellaskóli, Jafnréttisskólinn, félagsmiðstöðin Hundraðogellefu, ráðgjafaog viðbragðsteymi um óæskilega kynferðislega hegðun barna og ungmenna, Miriam Petra fræðsluaðili um fordóma og inngildingu, Chanel Björk hjá Mannflórunni og Menntavísindasvið HÍ.

Verkefnastjóri er Helgi Gíslason.

Verkefnið hlaut 6.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.

Tenging við menntastefnu Heilbrigði
Starfsstaður Grunnskóli
Skólaár 2025-2026
Scroll to Top