Félagsfærni, Heilbrigði, Sjálfsefling

Hinsegyn-Hinseginvænni Grafarvogur og Kjalarnes

Markmið verkefnisins er að efla fræðslu og vitund um hinsegin málefni meðal starfsfólks grunnskóla og félagsmiðstöðva í Grafarvogi. Einnig að efla fræðslu og vitund um hinsegin málefni meðal nemenda á unglingastigi og að vinna markvisst með hinsegin unglingum í hverfinu  til að bæta geðheilsu þeirra, auka félagsfærni og styðja.

Í þessu samverkefni taka þátt Gufunesbær, Rimaskóli, Foldaskóli, Víkurskóli, Klébergsskóli, Húsaskóli, Engjaskóli, Hamraskóli, Borgarskóli, félagsmiðstöðvarnar Sigyn, Fjörgyn, Víggyn og Höllin og Háskóli Íslands.

Verkefnastjóri er Maríanna Wathne Kristjánsdóttir.

Skólaárið 2021-2022 fékk verkefnið 5.000.000 kr. í styrk úr B-hluta þróunarsjóðs.

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Heilbrigði, Sjálfsefling
Starfsstaður Frístundastarf, Grunnskóli
Skólaár 2021-2022
Viðfangsefni Félagsfærni, Heilbrigði, Sjálfsefling, hinsegin
Scroll to Top
Scroll to Top