Fagmennska og samstarf

LÆM – Læsi allra mál

LÆM-verkefnið er heildstæð nálgun sem miðar að því að efla málþroska og læsi barna í Breiðholti, með sérstaka áherslu á tví- og fjöltyngd börn. Breiðholt er einstakt að því leyti að þar býr hátt hlutfall barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, auk þess sem mörg þeirra alast upp við bága félagslega og efnahagslega stöðu. Þessi samsetning kallar á skýrar og markvissar aðgerðir, sérstaklega í ljósi þess að skortur á menntun, starfsreynslu og íslenskukunnáttu hjá hluta starfsfólks hefur óhjákvæmileg áhrif á gæði og stöðugleika skóla- og frístundastarfs í hverfinu.

Reglubundnar skimaniðurstöður sýna að verulegur fjöldi barna í Breiðholti mælist með slakan málþroska og skorar lágt á lestrarprófum og mælingum á námsorðaforða. Þessar niðurstöður staðfesta brýna þörf fyrir sértækan íslenskustuðning og víðtækar aðgerðir til að styðja við málþroska barna í hverfinu.

LÆM-verkefnið leggur góðan grunn að þessari vinnu með því að innleiða reglubundin skimunarpróf sem fylgja skýrum verkferlum á báðum skólastigum, tryggja markviss inngrip og eftirfylgd í kjölfar skimunar, auka fræðslu og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks, og veita faglega leiðsögn við þróun kennsluhátta.

Verkefnið styður við grunnstoðir Menntastefnu Reykjavíkur með áherslu á læsi, samfellu í námi og aukið samstarf milli skólastiga. Ávinningurinn felst í jafnari tækifærum barna til náms, aukinni inngildingu í íslensku samfélagi og sterkari einstaklingum sem betur eru í stakk búnir til að takast á við framtíðina.

Þátttakendur eru: Suðurmiðstöð, leikskólar í Breiðholti, grunnskólar í Breiðholti, frístundaheimili í Breiðholti, Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri.

Verkefnastjórar eru Bryndís Bergþórsdóttir, Elva Bergþóra Brjánsdóttir, Hafdís Erla Valdimarsdóttir, Sigrún Alda Sigfúsdóttir, Sigurlaug Helga Þorleifsdóttir og Tanja Stepansdóttir.

Verkefnið hlaut 7.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.

Tenging við menntastefnu Fagmennska og samstarf
Starfsstaður Frístundastarf, Grunnskóli, Leikskóli
Skólaár 2025-2026
Scroll to Top