Þetta verkefni miðar að því að virkja börn og unglinga til þátttöku í gegnum skapandi ferli og hópastarf, í takt við hæfniþætti Menntastefnu Reykjavíkur. Verkefnið á sér stað í hverfi þar sem íbúasamsetningin er fjölbreytt og þar sem skóla- og frístundastarf í miðborginni stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum. Með því að byggja á listsköpun og samvinnu er leitast við að efla félags- og tilfinningahæfni, styrkja þrautseigju, kenna börnum að setja sér markmið og fylgja þeim eftir, auk þess sem þau fá að sjá afurð verða til og upplifa árangur.
Listirnar verða þannig vettvangur fyrir þátttöku, sjálfstjáningu og samfélagslega tengingu. Í gegnum verkefnið læra börn og unglingar að vinna saman, styrkja félagsfærni sína og efla jákvæð samskipti. Listsköpunin ýtir undir sköpunarkraft og eflir gróskuhugarfar sem stuðlar að sjálfstrausti og áhuga á framtíðarþátttöku í listum og samfélagsmálum.
Verkefnið er unnið í samstarfi við listafólk og háskólasamfélagið, þar sem áhersla er lögð á inngildandi fræði og gagnreynda aðferðarfræði. Markmiðið er að bjóða börnum og unglingum upp á innihaldsríka og valdeflandi reynslu sem styrkir þau til framtíðar – bæði sem einstaklinga og virka þátttakendur í samfélaginu.
Þátttakendur eru: Félagsmiðstöðin 100og1, frístundaheimilið Draumaland, frístundamiðstöðin Tjörnin, Menntavísindasvið HÍ, Vesturmiðstöð og Girerd leikhúsið.
Verkefnastjóri er Gissur Ari Kristinsson.
Verkefnið hlaut 4.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.