Með þessu verkefni ætlum við að fá foreldra í samstarf og stuðla að inngildingu þeirra í námi og leik barna sinna með því að efla íslenskan orðaforða þeirra. Það mun stuðla að betri tengingu og þátttöku þeirra í starfi skólanna. Ávinningur verkefnisins verður virkari þátttaka foreldra í námi og starfi barna sinna. Aukin íslenskukunnátta þeirra dregur úr þörfum á túlkaþjónustu og stuðlar að betri samskiptum milli heimilis og skóla. Þetta valdeflir og eykur líkur á virkari þátttöku foreldra.
Þátttakendur eru: Fellaskóli, leikskólarnir Ösp og Holt og Menntavísindasvið HÍ.
Verkefnastjóri er Hlíf Brynja Baldursdóttir.
Verkefnið hlaut 8.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.