Fagmennska og samstarf

Markvisst innra mat

Verkefninu „Markvisst innra mat“ samstarfsverkefni milli skóla innan hverfa og milli hverfa er ætlað að bregðast við tveimur áskorunum, annars vegar áskorun sem lítur að innra mati í grunnskólum og gæðum skólastarfs og hins vegar áskorun um að deila verkefnum og þétta
samstarf grunnskóla innan og milli hverfa. Meginmarkmið verkefnisins er að skapa tækifæri fyrir stjórnendur og lykilstarfsmenn í grunnskólum Reykjavíkur að sækja sér þekkingu og innblástur til að efla og styðja við innra mat með það fyrir augum að bæta gæði skólastarfs.
Það verður gert með því að bjóða upp á stuðning, fyrirlestra, málstofur um innra mat, námsheimsóknir og stuðningsefni.

Matið gerir skólum kleift að kynnast starfinu sínu vel og finna bestu leiðirnar til umbóta fyrir nemendur. Með markvissri samvinnu, samræðum, skráningu og greiningu eflist vitund um starfið og er valdeflandi fyrir þau sem taka þátt. Vonir standa til að verkefnið verði hvati til
öflugs samstarfs milli skóla í sama hverfi jafnframt því að auka samstarf milli hverfa, með það að leiðarljósi að efla gæði skólastarfs fyrir starfsfólk og nemendur.

Þátttakendur eru: Grunnskólar í Suður-, Norður- og Vesturmiðstöð.

Verkefnastjóri er Svandís Egilsdóttir.

Verkefnið hlaut 5.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.

Tenging við menntastefnu Fagmennska og samstarf
Starfsstaður Grunnskóli
Skólaár 2025-2026
Scroll to Top