Þróunarsjóður
Leikskólum, grunnskólum, frístundamiðstöðvum og skólahljómsveitum í Reykjavík gefst kostur á að sækja um styrki frá skóla- og frístundaráði borgarinnar.
Árið 2026 verður eingöngu úthlutað styrkjum til B-hluta verkefna og er umsóknarfrestur er til og með 01. mars 2026. Gert er ráð fyrir að verkefni verði framkvæmd skólaárið 2026-2027 og er heildarupphæð úthlutunar árið 2026 50 m.kr.
Gert er ráð fyrir að styrkur fyrir hvert B-hluta verkefni sé að lágmarki 4. m.kr. og að hámarki 8. m.kr.
Fyrirspurnir um B-hluta styrki er hægt að senda á Hjört Ágústsson, skrifstofustjóra nýsköpunar og þróunar hjá SFS.
Forsenda styrkveitingar er að verkefnin byggi á Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem leiðarljósið er virkni og þátttaka barna, fagmennska og samstarf. Grundvallarþættir stefnunnar eru fimm: félagsfærni, sjálfsefling, læsi, sköpun og heilbrigði og skulu þróunar- og nýsköpunarverkefni tengjast einum eða fleirum þessara þátta og/eða endurspegla yfirskrift, leiðarljós og framtíðarsýn stefnunnar: Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag. Einnig er leitast eftir því að verkefni séu tengt almennum aðgerðum Menntstefnu Reykjavíkur fyrir árin 2025-2027.
A-hluti. Styrkir sem veittir eru til allra grunnskóla, leikskóla, frístundamiðstöðva og skólahljómsveita út frá einföldu og skýru umsóknarferli. Fjárhæðir styrkja eru ákveðnar út frá reiknireglu sem tekur til fjölda árlegra stöðugilda, barnafjölda og rekstrarumfangs. ATH. Ekki verður úthlutað styrkjum til A-hluta verkefna árið 2026
B-hluti. Stærri samstarfsverkefni þar sem gerð er krafa um þverfaglegt samstarf á milli starfseininga s.s. eins og milli skólastiga, frístundamiðstöðva, skólahljómsveita eða annarra skóla eða starfsstaða innan sem utan hverfis.