Á vefnum barnasáttmáli.is er fróðleikur, verkefni og leikir um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindi barna. Þar má finna greinagóðar upplýsingar um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, hugtakalista og kennsluhugmyndir, Almennar upplýsingar um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og sáttmálinn í heild sinni ásamt fræðslu fyrir börn, kennara og foreldra. Barnasáttmálinn og verkefni honum tengd er til á ýmsum tungumálum sem sækja má á vefinn.

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
-
Rafrænt veggspjald og bæklingur
-
Fyrir kennara - Fræðsla og verkefni um Barnasáttmálann
Á námsvef um Barnasáttmálann má finna gagnvirk verkefni og fróðleik fyrir börn um sáttmálann og mannréttindi barna almennt. Þá er á vefnum hægt að finna leiðbeiningar um notkun verkefnanna í skólastarfi.
Þar er að finna:
Eins og kemur fram í 42. grein Barnasáttmálans eiga allir að þekkja til réttinda barna og gildir það ekki síður um börnin sjálf sem eiga rétt á því að fræðast um réttindi sín.
Í 29. grein Barnasáttmálans kemur fram að menntun eigi að gefa börnum tækifæri til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og undirbúa þau til að lifa í samfélagi þar sem ríkir skilningur, friður, umburðarlyndi, jafnrétti og vinátta.
Þessar greinar Barnasáttmálans eru í samræmi við þá áherslu sem lögð er á lýðræði og mannréttindi í aðalnámskrá grunnskóla 2011 en þar segir m.a. (bls. 21):
Virðing fyrir manngildi og heilbrigði barna og ungmenna felur bæði í sér virðingu fyrir mannréttindum þeirra og viðurkenningu á hæfileikum þeirra og þroskamöguleikum. Viðhorf, gildismat og siðferði eru ríkir þættir í lýðræðismenntun jafnframt því sem þau atriði fléttast saman við aðra grunnþætti menntunar.
Einnig kemur fram í aðalnámskrá grunnskóla að efla þarf þekkingu á grundvallarréttindum barna og fullorðinna með hliðsjón af íslenskri löggjöf og alþjóðasamningum. Þá verði lýðræðislegt gildismat ekki mótað nema allar námsgreinar og öll námssvið séu notuð til þess.
Námsefnið sem er að finna á vef Barnasáttmálans er fjölbreytt og leitast er við að koma að sem flestum grunnþáttum menntunar og ólíkum námssviðum. Þannig er námsefnið m.a. sniðið að mismunandi styrkleikum barna og ungmenna og sú viðleitni er viðhöfð að höfða til sem flestra. Í verkefnalýsingum verkefnanna eru kennsluleiðbeiningar settar upp á einfaldan hátt.
-
Fyrir börn
Á vefnum er að finna greinagóðar upplýsingar fyrir börn. Þar geta þau fræðst um barnasáttmálann, fundið barnasáttmálann á barnvænu máli og gert verkefni.
-
Fyrir foreldra
Á vefnum er góð fræðsla fyrir foreldra sem þau geta nýtt sér sem uppeldisaðili barna. Þar er að finna upplýsingar um Barnasáttmálann, hlutverk foreldra í framfylgd mannréttinda barna, sögu Barnasáttmálans og útgefið efni fyrir foreldra.
Dæmi um efni:
-
Kahoot – Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Hér má finna Kahoot leik á íslensku með spurningum um réttindi barna og ákvæði Barnasáttmálans sem útgefinn er af UNICEF.