Í þessu myndbandi er fjallað um hvernig Biophilia, menntaverkefni Bjarkar Guðmundsdóttur, og systurverkefni þess, Listrænt ákall til náttúrunnar (LÁN) hafa umbreytt starfi með elstu börnunum í leikskólanum Kvistaborg og stuðlað að heimspekilegri umræðu og magnaðri sköpun barnanna.
Skoðað er hvernig verkefnin eru unnin með börnunum og hvernig þau breytast í takt við barnahópinn hverju sinni.
Erna Agnes Sigurgeirsdóttir og Málmfríður Einarsdóttir kynna.