Félagsfærni, Heilbrigði, Læsi, Sjálfsefling, Sköpun

Brúarklúbbur

Miklar breytingar geta orðið í lífi barna þegar þau ljúka 4. bekk,  hætta á frístundaheimilum og byrja í félagsmiðstöðvum. Á þessum tímamótum getur því verið gott fyrir börnin að hafa fengið  innsýn af starf félagsmiðstöðva. Í Brúarklúbbi gefst þeim tækifæri til að kynnast starfsfólki félagsmiðstöðvarinnar, börnum í 5.bekk og fara í skemmtilega leiki, ferðir og fleira.

Brúarklúbbur 

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Heilbrigði, Læsi, Sjálfsefling, Sköpun
Gerð efnis Fræðilegt, Ítarefni, Kveikjur, Vefsvæði
Markhópur 6-12 ára börn.
Viðfangsefni Andleg og félagsleg vellíðan, Barnamenning, Forvarnir, Jafnrétti, Lýðræði, Læsi og samskipti, Mannréttindi, Samskipti, Samvinna, Sjálfsmynd, Sjálfstraust, Sköpun og menning. Staðalmyndir. Styrkleikar. Talað mál, hlustun og áhorf, Umræður. Frístundalæsi.
  • Í upphafi er nauðsynlegt að setja sig í samband við starfsfólk félagsmiðstöðvar sama skóla og frístundaheimilið stendur við og kanna hvort áhugi sé fyrir því að stofna Brúarklúbb.
    Þá er hægt að setja saman skipulag yfir skólaárið og ákveða hversu oft klúbburinn kemur saman og hversu margir geta tekið þátt hverju sinni. Einnig er gaman að bjóða börnum úr 5.bekk að taka þátt í klúbbnum.

    Gott er að byrja á því að ræða við börnin um væntingar þeirra til klúbbsins og kanna hvort þau séu með einhverjar óskir, sem reynt verður eftir bestu getu að taka tillit til við skipulagningu klúbbsins. Gaman er að fara í alls konar ferðir með barnahópinn og að sjálfsögðu að fara reglulega í heimsókn í félagsmiðstöðina þar sem börnin geta farið í skemmtilega leiki við börnin í 5. bekk, spilað flóknari spil, föndrað ýmislegt og unnið með meira krefjandi efnivið. Í lok hvers Brúarklúbbs er mikilvægt að gefa sér 1sér 0 mínútur til þess að ræða við börnin, spjalla um klúbbinn og jafnvel ræða við þau um líðan þeirra varðandi þau tímamót að hætta á frístundaheimili.

Scroll to Top
Scroll to Top