Handbók eftir Guðrúnu Pétursdóttur um fjölbreyttar samvinnumánsaðferðir í fjölbreyttum nemendahópi. Bókin er fyrir kennara, kennaranema og aðra sem koma að kennslu.
Handbók eftir Guðrúnu Pétursdóttur um fjölbreyttar samvinnumánsaðferðir í fjölbreyttum nemendahópi. Bókin er fyrir kennara, kennaranema og aðra sem koma að kennslu.
Nemendahópar okkar eru fjölmenningarlegir, jafnvel þó enginn í hópnum sé af erlendum uppruna. Nemendur okkar mæta allir í skólann, mótaðir af sinni persónulegu menningu; þau koma frá félagslega- og efnahagslega ólíkum heimilum, eiga menntaða eða ómenntaða foreldra, eru með ólíkan trúar eða trúleysis bakgrunn, eru af ólíkum þjóðernisuppruna, ólíkt heilsufar, kyn og kynhneigð, með ólíka hæfni og styrkleika… allt þetta og miklu fleira gerir þau að fjölmenningarlegum hóp því allt þetta hefur áhrif á menningu hvers og eins.
Í sérhverjum nemendahóp munum við finna nemendur sem hentar illa hið hefðbundna kennsluform þannig að við þurfum að vera tilbúin að bjóða nemendum upp á nám sem býður upp á virkni, skapandi og gagnrýna hugsun og þjálfun í samskiptum og samvinnu. Bókin er gagnleg kennurum á öllum skólastigum og fæst nú í bóksölu stúdenta: https://www.boksala.is/.