
Verkefnið Ég er einstakur/stök byggir á ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna; 2. greininni um jafnræði barna og bann við mismunun og 7. greininni um rétt sérhvers barns til nafns og ríkisfangs. Tilgangur verkefnisins er að börnin horfi inn á við, skoði styrkleika sína og finni hvað gerir þau einstök. Verkefnið hentar ungum grunnskólabörnum, t.d. í frístundastarfi.
Höfundur verkefnisins er Lilja Marta Jökulsdóttir, forstöðukona í frístundaheimilinu Dalheimum.