Félagsfærni

Femínísk verkefni

Spurningar um femínisma sem hægt er að nýta í kynjafræðslu.

Tenging við menntastefnu Félagsfærni
Gerð efnis Verkefni
Markhópur 13-16 ára
Viðfangsefni Jafnrétti, Mannréttindi, Staðalmyndir
  • Umfjöllun og úrvinnsla á femínisma

    1. Hvað er feminismi? (Nota heimildir)

    2. Hverjir eru helstu fordómar gegn feministum? Hér er gott að hafa vísun í orðræðu eða umræðu sem þið þekkið, úr ykkar umhverfi eða jafningjahópi.

    3. Af hverju ættir þú að vera feministi/ eða af hverju ættirðu ekki að vera feministi?

    4. Hvað er mikilvægt í baráttu kynjanna?

    5. „Plot-twist“ – þið ætlið að vera með einhvern aktivisma hér, taka fyrir málefni sem ykkur finnst áhugavert. Eitt plakat sem sýnir eitthvað ójafnrétti sem ykkur finnst mikilvægt.

    Orðræðugreina femínsk málefni og femímisma
    Finna fréttir um feminisma og andfemínimsa í eftirfarandir málefnum. Nemendur vinna 2-3 í hóp og hver hópur finnur 2 dæmi um femíníska frétt um málefnið sitt og 2 andfemíniskar

    1. Stjórnmál – orðræða um stjónmálakonur. Er talað á ólíkan hátt um konur og karla í stjórnmálum?

    2. Stjórnmál – Er munur á málefnum kvenna og karla á Alþingi?

    3. Vinnumarkaður – launamál einstaklinga og stétta (hópa)

    4. Vinnumarkaður – stöðuveitingar – hverjir stjórna íslenskum fyrirtækum?

    5. Vinnumarkaður – kynjaskekkjur í starfsvali

    6. Kynferðisleg áreitni – #metoo

    7. Kynferðisofbeldi – Þjóðhátið í Eyjum

    8. Femínískir áhrifavaldar á samfélagsmiðlum – Sóley Tómasar og Hildur Lillendahl

Scroll to Top
Scroll to Top