Í þessu erindi sem flutt var á menntastefnumóti skóla- og frístundasviðs 10. maí 2021, fjalla Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístundamála, Íunn Eir Gunnarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, Sigrún Sveinbjörnsdóttir og Gísli Ólafsson, verkefnastjórar á frístundahluta fagskrifstofu um störf frístundafræðinga á frístundaheimilum SFS.
Soffía segir frá tilurð verkefnisins og markmiðum þess, Íunn kynnir kennsluhandbók sem nýtist frístundafræðingum í starfi, Sigrún greinir frá niðurstöðum könnunar um störf frístundafræðinga og Gísli lítur til framtíðar varðandi þróun á starfinu.