Á vefsíðu Æskulýðsvettvangsins má finna verkfæri fyrir þau sem vinna með börnum og unglingum til að vinna með fjölmenningu á inngildandi hátt. Á vefsíðunni má finna ýmis verkfæri eins og hugtakasafn, gátlista og viðbragðsáætlun við fordómum, kynþáttaníði og mismunun.
Félagsfærni, Heilbrigði, Sjálfsefling
Fjölmenning og inngilding í íþrótta- og æskulýðsstarfi
Tenging við menntastefnu
Félagsfærni, Heilbrigði, Sjálfsefling
Gerð efnis
Vefsvæði
Markhópur
Starfsfólk og starfsþróun
Viðfangsefni
Andleg og félagsleg vellíðan, forvarnir, jafnrétti, lýðræði, mannréttindi, staðalmyndir
-
Í fjölmenningarlegu samfélagi er litið á fjölbreytileika sem sjálfsagðan hlut og lögð er áhersla á inngildingu (e. inclusion). Inngilding felur í sér að viðurkenna og virða fjölbreytileikann og gera alltaf ráð fyrir honum. Inngilding snýr að því að virkja allt fólk til þátttöku og gera fjölbreyttum hópi fólks kleift að taka þátt í ákvarðanatöku.