Félagsfærni, Sjálfsefling

Frístundafræðingur á miðstigi

Í þessu myndbandi kynnir Helga Hjördís Lúðvíksdóttir aðstoðarforstöðumaður og Alda Þyrí Þórarinsdóttir frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðinni Vígyn verkefnið Frístundafræðingur á miðstigi.

Verkefnið fól í sér að búa til stöðu frístundafræðings í þeim tilgangi að efla félagsfærni, sjálfsmynd, veita umhyggju og auka virka þátttöku barna í Engja- og Borgarskóla á aldrinum 10-12 ára. Um er að ræða nýtt verkefni sem ekki hefur verið unnið áður hér á landi svo vitað sé. Fyrirmyndin er hins vegar fengin úr hugmyndafræði og verkefnum sem frístundafræðingar á barnastigi sinna nú í samstarfi frístundaheimilis og skóla víðs vegar um borgina.

Samstarfsverkefnið Frístundafræðingur á miðstigi fékk styrk úr B-hluta þróunarsjóð skóla- og frístundaráðs fyrir skólaárið 2020-2021.

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Sjálfsefling
Gerð efnis Ítarefni, Myndbönd
Markhópur Starfsfólk og starfsþróun
Viðfangsefni félagsfærni, sjálfsmynd, samskipti, liðsandi, félagsleg tengsl, andleg og félagsleg líðan, samskiptasáttmáli
  • Frístundafræðingur á miðstigi

Scroll to Top
Scroll to Top