Frístundalæsi er frjór hugmyndabanki sem hefur það að markmiði að efla málskilning og læsi á frístundaheimilum borgarinnar.
Höfundar bankans, þær Tinna Björk Helgadóttir og Fatou Nesta Ndure, hafa unnið að þessu þróunarverkefni síðastliðin ár í samstarfi við skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Rannsóknarmiðstöð Íslands. Lögð er áhersla á gott og hagnýtt efni fyrir starfsfólk frístundaheimila til að vinna með læsi í gegnum leik.
Í þessu myndbandi segir Tinna Björk frá verkefninu.