Heilbrigði, Sjálfsefling

Göngum í skólann

Verkefnið Göngum í skólann er til að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með mörgum öðrum þjóðum heims, svo sem Áströlum, Brasilíumönnum, Kýpurbúum, Bretum, Írum, Nýsjálendingum, Svisslendingum og Bandaríkjamönnum.

Í októbermánuði ár hvert eru börn hvött sérstaklega til að nýta sér virkan samgöngumáta, svo sem göngu, til að ferðast til og frá skóla. Vegna aðstæðna hérlendis hefst verkefnið í september og lýkur á alþjóðlegum Göngum í skólann-deginum í byrjun október.

Markmið verkefnisins eru meðal annars að:
– Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
– Stuðla að heilbrigðum lífsstíll fyrir alla fjölskylduna, en hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
– Minnka umferð við skóla og draga þar með úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum ásamt betra og hreinna lofti og öruggari og friðsælli götum og hverfi.
– Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál. Beina sjónum að því hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Auka samfélagsvitund.
– Auka vitund um reglur þær er lúta að öryggi á göngu og hjóli.

Tenging við menntastefnu Heilbrigði, Sjálfsefling
Gerð efnis Vefsvæði, Verkefni
Markhópur 6-16 ára og starfsfólk.
Viðfangsefni Andleg og félagsleg vellíðan, Forvarnir, Líkamleg færni, Lífs- og neysluvenjur, Seigla/þrautseigja, Sjálfbærni og vísindi, Sjálfsmynd, Sjálfstraust, Útinám
Scroll to Top
Scroll to Top