Í þessum frábæra fyrirlestri fjallar Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, um þroska heilans, það sem breytir honum og tengsl við draumaveröldina.
Í fyrirlestrinum er farið yfir þá áhættu sem fylgir níkótín fíkn og nýjum áskornum sem fylgja rafrettum og nikótínpúðum sem markaðssett eru til barna og unglinga. Lára fer einnig yfir áhrif koffíns og orkudrykkja á heilan og áhrif neyslu slíkra drykkja á svefn unglinga og mikilvægi svefns fyrir þroska heilans.
Fyrirlesturinn var tekinn upp og frumfluttur á Höfuð í Bleyti 2020, uppskeruhátíð frístundamiðstöðvanna í Reykjavík.