Heilsueflandi grunnskóla er ætlað að styðja skóla í að vinna markvisst að heilsueflingu í starfi sínu. Í því felst að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks í samvinnu við heimili og nærsamfélag. Skólar koma sér upp heildrænni og vel skipulagðri heilsustefnu þar sem horft er á allt skólasamfélagið í heild.
Heilsueflandi grunnskóli
-
Þátttaka
(Allar upplýsingar um þátttöku er að finna á https://island.is/heilsueflandi-grunnskoli)
Þátttaka veitir
-
Aðgang að heilsueflandi.is sem er rafrænt kerfi þar sem hver grunnskóli heldur utan um heilsueflingarstarf skólans
-
Leiðbeiningar um ferlið
-
Aðgang að fyrirlestrum og fræðsluefni
-
Spjald til að hengja upp í skólanum
-
Stuðning gegnum síma og tölvupóst
Í hverju felst starfið?
Heilsueflandi grunnskóli er ekki verkefni með upphaf og enda heldur nálgun sem nýtist í starfinu til framtíðar. Hver grunnskóli vinnur á þeim hraða sem þeim hentar og reiknað er með að skólinn taki sér allt að ár í undirbúning.
Undirbúningur
Undirbúningsvinnan felst í því að
-
mynda stýrihóp
-
skoða stöðu grunnskólans
-
gera grunn að heilsustefnu
-
fylla út í gátlista á lokuðu vefsvæði sem þátttökuskólar hafa aðgang að. Þar getur hver og einn skóli metið eigin stöðu og í framhaldinu haldið utan um markvisst heilsueflingarstarf.
Kostnaður
Þátttaka er grunnskólum að kostnaðarlausu og ekki þörf á undirbúningsvinnu áður en sótt er um.
Umsóknarferli
Að sækja um felur í sér að grunnskólinn hefur einsett sér að vinna markvisst að heilsueflingu í sínum skóla og að skólastjórnendur staðfesti það með undirskrift umsóknar. Eftir að umsókn er móttekin fær grunnskólinn sendan aðgang að heilsueflandi.is auk ýmissa upplýsinga til þess að hjálpa þeim að hefja vinnuna.
Ekki hika við að hafa samband á netfangið hgs@landlaeknir.is til þess að fá frekari upplýsingar.
Nánar um Heilsueflandi grunnskóla
Heilsueflandi grunnskóli er afurð þróunarstarfs sem var unnið í samstarfi við fjölmarga hagsmunaaðila. Við mótun Heilsueflandi grunnskóla var stuðst við efni frá Samtökum heilsueflandi skóla í Evrópu (Schools for Health in Europe, SHE). Egilsstaðaskóli var forystuskóli í þeirri vinnu.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og velferðarráðuneytið hafa stutt við mótun Heilsueflandi grunnskóla en einnig eiga Samband íslenskra sveitarfélaga, Heimili og skóli, skólaheilsugæslan, háskólasamfélagið, Menntamálastofnun og skóla- og frístundasvið Reykjavíkur fulltrúa í ráðgefandi faghópi Heilsueflandi grunnskóla.
-
-
Handbók um heilsueflandi grunnskóla
Handbók með leiðbeiningum fyrir skóla um að setja sér stefnu um hreyfingu, mataræði, geðrækt, öryggi, tannheilsu, fjölskyldu samskipti og stíga þannig skref í átt að verða heilsueflandi grunnskóli. Útgefin af Landlæknisembættinu.
Í handbókinni eru gátlistar sem styðja við stefnumótunina. Á blaðsíðu 51 hefst umfjöllun um geðrækt þar sem fjallað er um tilfinningar og andlega líðan.