Hreyfing og hlustun gengur út á að efla hlustun, hreyfingu og umhverfislæsi barna með gönguferðum um nærumhverfi þeirra. Þar fer fram virk hlustun á göngu, m.a. með hlaðvarpi, ásamt samtali um það sem fram fer. Verkefnið var unnið fyrir börn á frístundaheimilum Miðbergs í Breiðholti.
Verkefnið Hreyfing og hlustun fékk styrk úr A-hluta þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla- og frístundaráðs fyrir skólaárið 2020-2021.
Í þessu myndbandi kynna Árbjörg Ólafsdóttir, Magnús Loftsson, Ottó Valur Leifsson verkefnið.