Í ljósi krakkasögunnar eru 20 mínútna lesnir þættir á RÚV um börn sem hafa með einhverjum hætti skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Í hverjum þætti er eitt barn tekið fyrir og saga þess sögð. Mikil fjölbreytni er í efnisvali þáttanna og því tilvalið að nýta þá í ýmis konar starfi með börnum og unglingum.
Þættina er einnig að finna á Spotify.