Læsi, Sköpun

Kvikmyndagerð í Stúdíó Eldflauginni

Í þessu myndbandi er fjallað um skipulag á kvikmyndagerð á frístundaheimilinu Eldflauginni, s.s. handritagerð, tökur, leikstjórn og fl.
Það hefur verið markmið í Eldflauginni að veita starfsfólki þjálfun og búnað til að vinna framsækið, skapandi starf með börnum sem hafa áhuga á kvikmyndagerð og vinnslu. Í gegnum sköpunarferlið fá börnin tækifæri til að uppgötva og þroska hæfileika sína og æfa sig í samvinnu við önnur börn. Að baki hverrar kvikmyndar er lengra ferli sem krefst þess að það ríki skýr sýn, lýðræðisleg vinnubrögð, samvinna og þrautseigja í hópnum. Börn sem taka þátt í slíku verkefni fá tækifæri til að þroska og efla leikni sína í tækni sem til þarf.  Sjá má dæmi úr leik og kvikmyndagerð barnanna.

Tenging við menntastefnu Læsi, Sköpun
Gerð efnis Ítarefni, Myndbönd
Markhópur Starfsfólk og starfsþróun
Viðfangsefni Kvikmyndagerð, sköpun, kvikmyndalæsi, miðlalæsi, skapandi starf.
  • Kvikmyndagerð í Stúdíó Eldflauginni

Scroll to Top
Scroll to Top