Mynd og verkefni þar sem nemendur útbúa og finna sér sitt eigið kyrrðarrými í kennslustofunni.
Læsi
Kyrrðarrými í kennslustofunni
Tenging við menntastefnu
Læsi
Gerð efnis
Kveikjur, Verkefni
Markhópur
Börn á grunnskólaaldri
Viðfangsefni
Andleg og félagsleg vellíðan, Lestur og bókmenntir, Læsi og samskipti, Ritun og málfræði, Sjálfsnám, Sköpun og menning, Styrkleikar
-
👆 Smelltu á myndina til að sjá hana stærri 👆
Hver og einn nemandi finnur hvernig honum gengur best að einbeita sér. Bakvið skjólvegg? Undir borði? Liggjandi á maganum? Öfugur í stólnum? Á teikningunni eru nokkrar hugmyndir sem er auðvelt að útbúa. Þegar allir hafa fundið sína einbeitingaraðstöðu er hægt að halda yndisstund. Þá velja nemendur eitt að þrennu sem gæti t.d. verið:
- Yndislestur (t.d. lesa í bók eða dagblaðið í dag)
- Yndisskrif (t.d. skrifa bréf til þín eftir 30 ár eða ljóð til stólsins sem þú situr á)
- Yndisteikning (t.d. teikna kennslustofuna frá þínu sjónarhorni). Á meðan er hægt að nota skjávarpann sem arineld eða fiskabúr eða spila fuglasöng í hátölurum.