Í þessu riti er fjallað um læsi í víðum skilningi. Hefðbundið læsi tengist kunnáttu og færni sem fólk þarfnast til þess að geta fært hugsun sína í letur og skilið prentaðan texta. Læsi í víðum skilningi vísar hins vegar til þess að nemendur nái tökum á ýmsum táknkerfum og miðlum; kunni til dæmis að búa til vef eða stuttmynd eða þjálfist í að leggja mat á margs konar efni, til að mynda fréttir og auglýsingar. Tungumálið er jafnmikilvægt og áður en er nú í sambýli við aðra tjáningarmiðla sem gegna afar mikilvægu hlutverki í námi, starfi og lýðræðisþátttöku fólks.
Þetta er eitt af sex heftum í ritröð um grunnþætti menntunar sem mennta- og menningarmálaráðuneytið og Menntamálastofnun gáfu út sameiginlega.