Haustið 2018 var leikskólanum Grænuvöllum boðin þátttaka í þróunarverkefni um starfsþróun kennara. Þróunarverkefni þetta er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitafélaga, Kennarasambands Íslands, Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Listaháskóla Íslands og Skólameistarafélags Íslands. Úr varð að Grænuvellir bjuggu markvissa læsisstefnu fyrir leikskólann. Í lok árs 2020 var lokaskýrslu verkefnisins skilað til Menntamálaráðuneytisins og markviss læsisvinna þegar hafin á öllum deildum leikskólans.
Læsi
Læsisstefna Grænuvalla – Þróunarverkefni
Tenging við menntastefnu
Læsi
Gerð efnis
Fræðilegt, Ítarefni
Markhópur
Leikskólar, leikskólakennarar, starfsfólk leikskóla, þróunarverkefni
Viðfangsefni
Læsi, starfsþróun
-
Lokaskýrsla læsisstefnu Grænuvalla