Í þessum leiðbeiningum, sem gefnar eru út af Evrópumiðstöð um nám án aðgreiningar og sérþarfir, er leitast við að greina aðaleinkenni gæðamenntunar í leikskóla margbreytileikans.
Þær eru leiðsögn fyrir starfsfólk til að skoða námsumhverfi leikskólans með margbreytilegan barnahóp í huga. Leiðbeiningarnar byggja á vistkerfiskenningum, þar sem lögð er áhersla á að öll börn tilheyri í leikskólanum, séu í virkum samskiptum, að fjölskyldur barna taki þátt og að samfélagið styðji við starfsemi leikskólans. Leikskólakennarar og annað starfsfólk gegna lykilhlutverki í að styðja við nám barna og þroska.