Í þessu myndbandi sem sýnt var á Menntastefnumótinu 2021 er sagt frá verkefninu Að endurskrifa sögur stríðs í sögur friðar og greina nemendur við stoðdeild Birtu lífssögu sína og segja frá framtíðardraumum sínum. Börnin lesa saman valdar barnasögur frá ýmsum menningarheimum sem koma inn á hluti eins og að taka jákvæðar ákvarðanir, hjálpa öðrum og sýna aðgát. Verkefnið byggist á því að hjálpa innflytjendabörnum, 10-14 ára, að segja frá, greina og endurskrifa lífssögur sínar. Eitt af markmiðum verkefnisins er að hjálpa börnunum að öðlast sjálfstraust og von um bjarta framtíð.
Félagsfærni, Heilbrigði, Læsi, Sjálfsefling, Sköpun
Mig dreymir um að verða … Stoðdeildin Birta
Tenging við menntastefnu
Félagsfærni, Heilbrigði, Læsi, Sjálfsefling, Sköpun
Gerð efnis
Ítarefni, Myndbönd, Verkefni
Markhópur
Starfsfólk og starfsþróun
Viðfangsefni
Mannréttindi, Barnasáttmálinn, andleg og félagsleg líðan, fjölbreytileiki, sjálfsefling, lífsleikni, íslenska sem annað tungumál
-
Mig dreymir um að verða ... um stoðdeildina Birta