Til að styrkja nemendur sem virka þátttakendur í eigin námi hafa verið útbúin fimm stutt myndbönd sem kennarar geta nýtt í samtölum um námsmarkmið, seiglu og námsmenningu. Myndböndin styðja við markmið Menntastefnu Reykjavíkur um að börn og ungmenni hafi skýra sýn á eigið nám, læri að setja sér markmið og upplifi að þau geti haft áhrif á eigin framfarir.
Læsi, Sjálfsefling
Myndbönd fyrir nemendur – Leiðsagnarnám í fyrirrúmi
Tenging við menntastefnu
Læsi, Sjálfsefling
Gerð efnis
Fræðilegt, Ítarefni, Kveikjur, Myndbönd
Markhópur
6-9 ára, 9-12 ára, 13-16 ára og starfsfólk
Viðfangsefni
Leiðsagnarnám, Leiðsagnarmat, Samvinna, Umræður
-
Leiðsagnarnám byggir á því að nemendur viti hvar þeir standa í námi, hvert þeir stefna og fái skýra leiðsögn til að brúa bilið þar á milli. Til þess þarf að:
-námsmarkmið og árangursviðmið séu skýr í hverri kennslustund,
-endurgjöf sé markviss og stöðug,
-jákvæð námsmenning sé rækilega höfð að leiðarljósi.Jákvæð og uppbyggjandi námsmenning er forsenda góðs námsárangurs. Þess vegna er mikilvægt að nemendur læri um grundvallarhugtök eins og vaxandi hugarfar, mikilvægi þess að læra af mistökum og hvernig heilinn styrkist með nýjum taugatengingum.Til að styðja þetta hafa verið útbúin fimm stutt myndbönd fyrir nemendur. Þau hjálpa þeim að átta sig betur á eigin námsferðalagi og hvetja þá til að vera virkir þátttakendur í náminu.Kennarar eru hvattir til að nýta myndböndin í samræðum við nemendur um nám, markmið og árangur.Þegar nemendur skilja að heilinn bregst við námi með því að mynda nýjar taugatengingar eykst áhugi þeirra, seigla og framför.