Félagsfærni, Sjálfsefling

Nokkur hinsegin verkefni

Hér eru tillögur að nokkrum fjölbreyttum hinsegin verkefnum, t.d. um birtingarmyndir hinsegin fólks í teiknimyndum og íþróttum. Hægt að nýta þetta verkefni í hinsegin fræðslu.

Nemendur velja sér eitt málefni til að fjalla. Þeir styðjast við minnst tvær heimildir og geta þeirra í lok verkefnis:

1. Birtingarmyndir hinsegin fólk í teiknimyndum. Hér er gagnlegt að vera með skýran fókus eins og til dæmis Disney myndir, hér er góð og áhugaverð heimild – Heimurinn hans Walts

2. Birtingarmyndir hinsegin fólks í íþróttum, hér er áhugavert að fjalla um Caster Semenya

3. Löggjöf um INTERSEX á Íslandi og umfjöllun um intersex, hægt að skoða Amnesty til dæmis.

4. Staða hinsegin baráttunnar í Póllandi, áhugaverða heimild er hér að finna

5. Fjallið um síðuna Ö til A takið fyrir grunninn og vísið í það sem fellur undir regnhlífina.

6. Fjallið um TRANS-réttindi og stöðu trans -umræðunnar. Bókin um réttindi transfólks gæti verið gagnleg heimild. 

7. Takið fyrir hvernig samkynhneigð birtist í meginstraums menningu (e. mainstream media), hér gætu þið fjallað um Æði, eða Lil Nas X eða hvernig „hómófóbía“ birtist í rapp eða öðru.

Hvernig þarf verkefnið að vera: 1
1. Fjallið í fyrstu almennt um efnið – hér skilgreinið þið hugtök og annað
2. Í framhaldi fjallið þið um efnið sjálft, byrjið á því almenna og heimildunum
3. Síðan hvernig þið sjáið þetta
4. Í lokin dragi þið saman
5. Notið myndir og annað skemmtilegt til þess að gefa efninu líf.

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Sjálfsefling
Gerð efnis Verkefni
Markhópur 13-16 ára og starfsfólk.
Viðfangsefni Andleg og félagsleg vellíðan, Jafnrétti, Mannréttindi, Sjálfsmynd, Staðalmyndir, Hinsegin
Scroll to Top
Scroll to Top