Félagsfærni, Læsi, Sjálfsefling

Raddir margbreytileikans – sögur úr skólastarfi

Bókin Raddir margbreytileikans – sögur úr skólastarfi er uppspretta ígrundunar um fjölmenningarlegt skólastarf. Raddir kennara, stjórnenda, foreldra og nemenda fá að njóta sín í tuttugu dæmisögum sem koma frá leik-, grunn- og framhaldsskólastiginu auk frístundaúrræða. Sögurnar varpa ljósi á ýmsar hliðar skólastarfs, svo sem móttöku og aðlögun, menningarmiðaða starfs- og kennsluhætti, tungumál sem auðlindir, samstarf og tengsl og stjórnun og stefnumörkun.

Sögurnar byggja á rannsóknargögnum og koma frá hópi fólks sem flest á það sameiginlegt að hafa komið að samnorrænu rannsóknarverkefni er kallast Námsrými félagslegs réttlætis og menntunar án aðgreiningar: Frásagnir um velgengni nemenda af erlendum uppruna og skóla á fjórum Norðurlöndum. Ritstjórar eru Edda Óskarsdóttir, Hanna Ragnarsdóttir og Samúel Lefever sem öll starfa á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Bókin er til sölu í Bóksölu kennaranema í Stakkahlíð og Bóksölu stúdenta, má panta á netfanginu boksalakenno@hi.is

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Læsi, Sjálfsefling
Gerð efnis Fræðilegt, Ítarefni
Markhópur Starfsfólk og starfsþróun.
Viðfangsefni Margbreytileiki, fjölmenning, fjölmenningarlegt skólastarf.
Scroll to Top
Scroll to Top