Í þessu þróunarverkefni sem fór af stað sumarið 2019 var búinn til samræmdur verkferill um samstarf frístundaheimila Gufunesbæjar við leikskólana. Markmiðið var að samræma heimsóknir leikskólabarna á frístundaheimili og útbúa leiðarvísi fyrir starfsmenn til að brúa bilið fyrir börnin yfir í starf frístundaheimila og auðvelda aðlögun þeirra.
Þetta erindi Elvu Hrundar Þórisdóttur og Maríu Unu Óladóttur var fyrst flutt á Höfuð í Bleyti í september 2020.
Verkefnið Samstarf við leikskólana í Grafarvogi um aðlögun barna í frístundaheimilin fékk styrk úr A-hluta þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla- og frístundaráðs fyrir skólaárið 2019-2020.