Læsi, Sjálfsefling, Sköpun

Seesaw – námsumsjónarkerfi

Seesaw er námsumsjónarkerfi sem hentar vel á yngstu stigum skóla- og frístundastarfs. Verkfærið er byggt upp sem rafræn feril- og verkefnamappa.

Foreldrar/forsjáraðilar geta fylgst með þegar verkefnum er bætt í möppuna með því að sækja smáforrit eða að skrá sig inn á vef Seesaw. Einnig er hægt að fá textaskilaboð eða tölvupóst.

Kennari sendir foreldrum/forsjáraðilum innskráningarupplýsingar. Verkefnin geta verið fjölbreytt; myndir, myndskeið, hljóðbrot, teikningar eða hlekkir á verkefni frá öðrum upplýsingatæknikerfum SFS. Kerfið veitir notendum yfirsýn yfir verkefnaskil og stuðlar að gagnsæi.

Foreldrar/forsjáraðilar fá tækifæri til þess að fá betri innsýn inn í nám barna sinna og skólastarfið almennt.

Tenging við menntastefnu Læsi, Sjálfsefling, Sköpun
Gerð efnis Ítarefni
Markhópur 3-12 ára
Viðfangsefni fjarnám, Sjálfsefling, Læsi, Sköpun
Scroll to Top
Scroll to Top