Heilbrigði, Læsi, Sjálfsefling

Siðfræðikennsla í frístundastarfi

Frístundaheimilið Undraland hlaut þróunarstyrk árið 2019-2020 til að efla siðfræðikennslu í frístundaheimilinu, útbúa fræðsluefni og koma á fót heimasíðu um siðfræðikennslu í frístundastarfi. Verkefnið var unnið í samstarfi við háskólasamfélagið, með það að markmiði að efla siðfræðilega vídd í frístundastarfinu og gera starfsfólki og börnum auðveldara að ræða hinn siðferðilega veruleika með gagnrýnni hugsun.  Verkefnið tók mið af og var þróað í frístundastarfi fyrir 1. og 2. bekk, en einnig unnið þannig að það geti nýst öllum aldurshópum, öðru tómstundastarfi, inn í skólastofuna, foreldrum og öðrum forráðamönnum.

Í þessu myndbandi kynnir Ellert Björgvin Scram þetta verkefni.

Hægt er að fræðast meira um málefnið á heimasíðunni sidfraediifristund.com

Tenging við menntastefnu Heilbrigði, Læsi, Sjálfsefling
Gerð efnis Ítarefni
Markhópur Starfsfólk og starfsþróun
Viðfangsefni Andleg og félagsleg vellíðan, siðfræði, Samskipti, gagnrýn hugsun
Scroll to Top
Scroll to Top