Hvernig vinn ég að því að vera skapandi skólastjórnandi? – úr ritröð um grunnþætti menntunar – Sköpun
Sköpun
Skapandi skólastjórnandi
Tenging við menntastefnu
Sköpun
Gerð efnis
Fræðilegt
Markhópur
Starfsfólk og starfsþróun.
Viðfangsefni
Barnamenning, Nýsköpun, Sköpun og menning, Skapandi ferli, Skapandi hugsun
-
- Hvernig vinn ég að því að vera skapandi skólastjórnandi?
- Ýti ég undir opin og leitandi vinnubrögð innan skólans?
- Leita ég lausna af kappi og með opnum huga?
- Greiði ég fyrir þróunarstarfi, finn áhugaverðum verkefnum farveg og fæ kennara til að vinna saman?
- Legg ég áherslu á skipulag þar sem allir geta lagt sitt af mörkum og nýtt tækifæri til samstarfs og teymisvinnu þvert á greinar og aldurshópa?
- Vaki ég yfir samstarfsmöguleikum og hvet bæði kennara og nemendur til þátttöku í verkefnum innan og utan skólans?
- Sýni ég áhuga og gæti þess að taka þátt í viðburðum og dagskrám á vegum skólans?
- Styð ég við frumkvæði starfsmanna í kennslu og á öðrum sviðum skólastarfsins?
- Fæ ég foreldra til þátttöku og nýti þá krafta sem þar liggja?
- Leita ég eftir góðum kennurum og öðru fagfólki til starfa við skólann með sköpun og skapandi nám í huga?
- Býð ég gestum úr hópi listamanna að heimsækja skólann?
- Nýti ég framtak og krafta nemenda, t.d. hljómsveitir, hljóðfæraleikara, söngfólk, dansara, íþróttafólk, graffara, prjónafólk, teiknara, skákmenn, áhugafólk um tækni, grúskara, áhugafólk um matreiðslu og fleira?
- Legg ég kapp á að menning, hlutskipti og framlag allra nemenda komi fram í verkefnavinnu sem er til sýnis innan skóla og utan?
- Stend ég vaktina gegn þröngum staðalímyndum, fordómum og vanahugsun og læt alla njóta jafnréttis?
- Hef ég vökult auga með því að inntak og skipulag náms höfði til beggja kynja og nemenda með ólíkan bakgrunn?
- Stuðla ég, innan dyra og utan, að kringumstæðum sem bjóða upp á notalega samveru, söng, leikflutning, spjall, upplestur, spil, hvíldarstundir, yndislestur, fjör og skapandi leiki?
- Leitast ég við að halda uppi öflugu menningarlífi í skólanum með sýn til margra átta?
- Gæti ég að möguleikum til hvers konar efnisleitar og nýmiðlunar með hjálp nýrrar tækni?
- Veiti ég starfsfólki á skólasafni eða í upplýsingaveri öflugan stuðning og á gott samstarf við leiðandi kennara í upplýsingatækni og miðlun?
- Hvet ég til samstarfs og faglegrar stefnumótunar á þessu sviði skólastarfsins?
- Leitast ég við að efla tilfinningu nemenda og ábyrgð á umhverfi og ásýnd skólans með því að veita þeim beinan aðgang að ákvörðunum og aðgerðum?
- Ýti ég undir forvitni og áhuga nemenda og kennara, spurningar, hugmyndavinnu og umræður?
- Stuðla ég að vellíðan, heilbrigði og góðum samskiptum með það fyrir augum að allir nemendur og kennarar fái notið sín í skapandi starfi?