Félagsfærni, Sjálfsefling

Táknkerfi kynjanna

Verkefni sem byggir á heimildamyndinni “Codes of gender”. Hægt er að nota þetta efni í kynjafræðslu, jafnréttisfræðslu, félagsfræði og fl.

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Sjálfsefling
Gerð efnis Ítarefni, Verkefni
Markhópur 13-16 ára
Viðfangsefni Jafnrétti, Sjálfsmynd, Sjálfstraust, Staðalmyndir
  • Táknkerfi kynjanna

    Nemendur glósa og svara þessum spurningum:

    • Hvað er átt við með táknkerfi kynjanna?

    • Hver er sýn poppmenningar á kynin?

    • Hvernig flokkum við fólk út frá merkjum? Hver eru þessi merki? Skipta þessi merki máli upp á samskipti?

    • Um hvað fjallar Ervin Goffman?

    • Hvað segja auglýsingar okkur um okkur sjálf?

    • Er kynvitund náttúruleg? – Hverskonar ferli á sér stað þegar kemur að kynvitund?

    • Hver er munurinn á hugtökunum kyn og kynvitund?

    • Karlmennska (e. masculine) eða kvenska (e. feminine) í vestrænum samfélögum hefur verið skilgreint að miklu leiti í tvíhyggju, hvernig er þetta skilgreint?

    • Hvernig lærum við að senda kynjamerkin eða kyngervistákn og hvað þýða þessi hugtök?

    • Hvað er auglýsingarraunsæi?

    • Af hverju er Goffman að einbeita sér að auglýsingum í sinni greiningu?

    • Hvað er átt við með kvenleg snerting?

    • Hvað er átt við með hefðbinding undirokunar?

    • Hvernig er undirokun og kvenskan tengd saman?

    • Hvernig er valdaleysið og klámvæðingin tengd saman?

    • Í gegnum auglýsingar hvernig má sjá muninn á hvernig við setjum fram karlmenn og konur?

    Nemendur glósa og svara þessum spurningum:

    • Hvað er feimnislega hnébeygjan?

    • Það er ítrekað komið inn á varnalausar og viðkvæmar, við hvað er átt?

    • Hvernig er talað um að konur eru gerðar hjálpvana? Hver er andstæðan og hvernig er þetta tengt dýraríkinu?

    • Hvað er átt við með heimil óvirkni? Hvernig birtist hún og hver er andstæðan, hvernig birtast þá menn?

    • Hvað er átt við með barngervingu?

    • Hvernig birtist barngerving? Af hverju er talað um að konur gangi aldrei úr barndómi?

    • Hver eru tákn karlmennskunnar?

    • Hvernig er karlmennskan skilgreind?

    • Takið dæmi um hvernig karlmennskan er sýnd í gegnum auglýsingar og myndmiðla?

    • Hvernig er sannfært gagnhneigða menn um karlmennsku í auglýsingar sem byggðar eru á hvernig samkynhneigðir menn eru sýndir?

    • Hvernig birtist fordómar fyrir samkynhneigð í því að þurfa að nota konur, til að selja karlmönnum tísku?

    • Hvernig eru líkamar karlmannanna og hvernig tengist það að draga úr „hommaerótík“?

    Nemendur glósa og svara þessum spurningum:

    • Erum við föst í kóðanum?

    • Hvernig má færa rök fyrir því að „tough girls“ séu ennþá fastar í kóðanum?

    • Hvernig birtist kóðinn jafnframt í íþróttum?

    • Hvernig hafa þessi tákn verið mótuð í gegnum tímannarrás?

Scroll to Top
Scroll to Top