Læsi, Sköpun

Þjóðminjasafnið – Skapandi samstarf við söfn

Á vef Þjóðminjasafns Íslands er að finna mjög skemmtilega fræðslupakka. Þar er einnig hægt að bóka heimsóknir fyrir leik- og grunnskólahópa og hópa úr frístundastarfi.

Tenging við menntastefnu Læsi, Sköpun
Gerð efnis Fræðilegt, Ítarefni, Vefsvæði, Verkefni
Markhópur Leikskólabörn, Grunnskólabörn, Frístundaheimili
Viðfangsefni Safnfræðsla, Samstarf, Saga, Ferðir, Íslandssaga, Þjóðminjasafnið
  • Skapandi samstarf við söfn. Handbók fyrir grunnskólakennara

    Söfn eru spennandi og skapandi námsvettvangur fyrir nemendur grunnskóla. Möguleikarnir á námi í samstarfi við safn eru margir og útkoman oft sérstaklega gefandi fyrir nemendur.

    Safnkennari Þjóðminjasafnsins hefur safnað saman í handbókina Hugmyndahattinn nokkrum reynslusögum af skapandi samstarfi milli safns og grunnskólakennara um land allt. Reynslusögurnar geta nýst sem útgangspunktur í samtali á milli grunnskólakennara og safnkennara um heppilega útfærslu miðað við námsefnið sem nemendur eru að vinna með. Samtalið er lykilatriði því þannig þróast hugmyndir áfram.

    Safnkennarar Þjóðminjasafnsins vona að handbókin hvetji kennara til að líta til safna þegar þematengt nám stendur fyrir dyrum um hvað eina sem tengist mannlífi, listum eða náttúru í landinu.

    hugmyndahatturinn_skemman

Scroll to Top