Félagsfærni, Læsi, Sjálfsefling

Tökum stökkið – draumar og landamæri

Í þessu erindi sem Oddný Sturludóttir flutti á Menntastefnumótinu 10. maí 2021 fjallar hún um samstarf þvert á landamæri fagþekkingar, þar sem fólk með ólíka sýn á nám, börn og unglinga mætist. Hvaða nám á sér stað þar? Hvaða áhætta er í því fólgin? Við sögu koma kunnugleg andlit samstarfs úr ólíkum hverfum, hið félagslega lím- og töfrarnir sem felast í því að taka stökkið og stíga til baka.

Oddný Sturludóttir er menntunarfræðingur og aðjunkt við HÍ. Hún starfar sem verkefnastjóri á Menntavísindasviði um Menntafléttu, Komdu að kenna og Menntamiðju. Hún kennir meistaranemum í tómstunda- og félagsmálafræði og stjórnun menntastofnana stjórnunarfræði og um samstarf ólíkra fagstétta. Áður fyrr kenndi Oddný börnum og unglingum á píanó, vann við ritstörf og sat í borgarstjórn Reykjavíkur. Þar tók hún þátt í stofnun skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur enda trúir hún því að draumar barna rætist í samstarfi.

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Læsi, Sjálfsefling
Gerð efnis Fræðilegt, Ítarefni, Myndbönd
Markhópur Starfsfólk og starfsþróun
Viðfangsefni Menntastefna, Samstarf fagstétta, Samskipti,
  • Tökum stökkið - draumar og landamæri

Scroll to Top
Scroll to Top