Heilbrigði, Sköpun

Útilistaverk í Reykjavík – smáforrit

Vandað smáforrit (e. App) um útilistaverk í Reykjavík sem að gefið er út af Listasafni Reykjavíkur. Á einfaldan og skemmtilegan hátt má fræðast um öll útilistaverk sem Listasafn Reykjavíkur hefur umsjón með í borgarlandinu, ásamt fleiri verkum, hlusta á hljóðleiðsagnir og fara í skemmtilega leiki. Forritinu má hlaða niður endurgjaldslaust í snjalltæki, bæði fyrir iOS og Android stýrikerfi.

Forritið er bæði á íslensku – Útilistaverk í Reykjavík og ensku – Reykjavík Art Walk – allt eftir stillingu snjalltækisins. Forritið hentar bæði fyrir börn og fullorðna.

Listasafn Reykjavíkur hefur umsjón með um tvö hundruð útlistaverkum í borginni. Með þessu smáforriti er hægt að nálgast upplýsingar um verkin. Þar er að finna myndir, texta, hljóðleiðsagnir og leiki. Útilistaverk í Reykjavík styðst við GPS staðsetningarbúnað símans til að vísa leiðina að næsta verki á almannfæri. Smáforritið býður upp á fræðslu og sögur á bak við hvert og eitt verk.

Tenging við menntastefnu Heilbrigði, Sköpun
Gerð efnis Kveikjur, Vefsvæði
Markhópur Börn 6-16 ára
Viðfangsefni Barnamenning, Sköpun og menning, Skapandi ferli, Skapandi hugsun, Sjálfsnám, Fjarnám
Scroll to Top
Scroll to Top