Íslensk heimildamynd með viðtölum við fimm börn innflytjenda á Íslandi. Í myndinn ræða börnin líf sitt og tilveru hér á landi og lýsa upplifun sinni af því að vera á mörkum ólíkra menningarheima. Efnið er þarft innlegg í kennslu og umræðu um fjölmenningu hér á landi.
Myndin er aðgengileg með kennsluleiðbeiningum á vef Menntamálastofnunar.