Félagsfærni, Heilbrigði, Læsi, Sjálfsefling, Sköpun

Nýtt fræðsluefni um hinsegin börn og ungmenni í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi

Um er að ræða leiðarvísi fyrir fjölskyldur þegar barn eða ungmenni kemur út, efni sem snýr að íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi hinsegin barna og ungmenna þar sem meðal annars er fjallað um að stöðva fordóma og mismunun og hvernig hægt er að vera með sýnilegan stuðning og einnig mikilvægar upplýsingar fyrir íþróttafélög um trans börn.

Samtökin ’78 hafa gefið út fræðsluefnið með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytisins. Samtökin ´78 hafa staðið fyrir fjölbreyttri útgáfu um hinsegin málefni og nú er þorri þeirrar útgáfu aðgengilegur á vefnum.

Efnið er í formi þriggja myndskreyttra bæklinga sem bera yfirskriftina

Auk þess voru gefin út tvö veggspjöld sem fjalla um

Markmiðið útgáfunnar er að tryggja þátttöku og aðgengi hinsegin barna og ungmenna að íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.

Verkefnið er ein af aðgerðum aðgerðaáætlunar í málefnum hinsegin fólks sem var samþykkt á Alþingi 2022 og var styrkt af Framkvæmdasjóði um hinsegin málefni og mennta- og barnamálaráðuneytinu. Fjölmargir komu að verkefninu sem var leitt af Sveini Sampsted íþróttafræðingi og fræðara.

Samtökin 78 héldu fjölmennan kynningarfund í vikunni þar sem nýja fræðsluefnið var kynnt fyrir starfsfólki og sjálfboðaliðum í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi. Hægt er að horfa á upptöku hér:

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Heilbrigði, Læsi, Sjálfsefling, Sköpun
Gerð efnis Fræðilegt, Ítarefni, Kveikjur
Markhópur Starfsfólk grunnskóla, Starfsfólk leikskóla, Starfsfólk frístundastarfs, Starfsfólk félagsmiðstöðva, Starfsfólk í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi
Viðfangsefni Andleg og félagsleg vellíðan, Forvarnir, Jafnrétti, Mannréttindi, Staðalmyndir, Hinsegin málefni, Hinsegin í íþróttum, Hinsegin í tómstundum, Hinsegin í æskulýðsstarfi, LGBTQIA+
Scroll to Top